Notendahandbók

 

Um notendahandbókina

Þessi síða er til að aðstoða vefstjórann sem nokkurskonar glósubók. Það má bæta við upplýsingum að vild.
Síðan kemur hvorki upp í leit, né veftrénu.

Myndir

Í skjalakerfinu er mappa merkt "Notendahandbók" sem er ætluð fyrir myndir sem fara á þessa síðu.

 

Efnis-/ textastílar í greinum

Lítill texti

Smátt letur: (þessir stílar gilda allir fyrir texta af tegundinni "P - málsgrein".)

Texti með mynd.

Mynd + texti í grein

Það er hægt að setja inn myndir með texta undir með því að setja myndina fremst í sitt eigið paragraph, skrifa texta aftan við myndina, og velja P-stílinn "Mynd og texti - hægri" (eða vinstri). 

Soft hyphen

Þegar unnið er með löng orð má setja "soft-hyphen" inn í þau til að segja vafranum hvar þau eiga að skipta sér ef þörf er á. 

Farið er í skráningu greinar og sett inn "­" í viðkomandi orð þar sem að skiptingin á að eiga sér stað (ath. ekki er hægt að gera þetta í gegnum vefritilinn). Short-cut fyrir þetta er: Ctrl. + Shift + Enter

Dæmi: Lyfjaskömmtunar­græjutæki

Lyfjaskömmtunar-
græjutæki


Fellilisti

Til að fá fellilista eins og á myndinni, er skrifaður titill og sett "Heading 3" á hann og svo er valið "H3 stíll: Fellifyrirsögn". Þegar notandi er svo útskráður fær fellilistinn réttan stíl.

Javascript grúppar saman allan texta sem kemur á eftir titilinum og fram að næsta titili (h1, h2, h3).
Ef það kemur texti á eftir fellilistanum sem á ekki að vera partur af honum, þá er valið að gera "Strik (kaflaskipting)" til að aðgreina hvar fellilistinn endar.
Primex-toolbar


Smellt er á "Breyta stillingum" til að vinna með bannerinn.

Setja nýja mynd eða skipta út: Smellt á  takkann með þremur punktum. 
Eyða mynd: Smellt á takkann með þremur punktum og í popup glugganum er smellt á " Hreinsa val" efst í hægra horni. 
Slóð með mynd: Þegar vefslóð er innan vefsins þarf ekki að skrifa http://www.primex.is/. Þá nægir að skrifa t.d. "/einhver-slod/".
Lóðrétt staðsetning: Hægt er að velja hvort myndin eigi að stækka inn í miðju, efst eða neðst á myndina. Sem dæmi: ef aðalatriði myndarinnar er efst, þá veljum við top, og þá sést sá hluti myndarinnar alltaf. Ef ekkert er varið í Lóðrétt staðsetning zoom-ast myndin í miðjuna.

 

Fréttir á forsíðu (sýna / fela)

Á forsíðu er hægt að sýna eða fela fréttir.

News-homeTil að birta eða fela fréttir á forsíðu er farið í menu efst í vinstra horni og valið "Yfirlit yfir síðuviðbætur".
Þá opnast popup gluggi. Í honum eru allar einingar á síðunni.
Í listanum er "News" og fremsta hakið segir til um hvort það sé virkt eða ekki og þar með sýnilegt eða ekki.

News-show

Fjöldi "Upcoming shows" á forsíðu

Til að breyta fjölda "Upcoming shows" á forsíðu (og það sama á við um fjölda frétta) er farið með músina yfir eininguna og smellt á bláa takkann sem birtist við hliðiná titilinum á einingunni.
Þar er valið "Breyta stillingum". Þá opnast popup gluggi. Í honum er að finna

  • Heildarfjöldi greina
  • Fjöldi aðalgreina (m. samantekt)

Þessum báðum tölum er breytt í þann fjölda sem á að birta.

Home-events-count

Upcoming shows - bæta við

Til að bæta við atburði er eftirfarandi gert:

  • "Nýskrá efni" -> skrá inn allar upplýsingar (titil, summary og article) og vista. 
    Það má gefa út, þá birtist greinin í listanum en ekki á forsíðu. Það má líka gefa út í lokin.
  • Skrá dagsetningu: Greinin fundin í listanum og smellt á gula takkan og "Breyta skráningu".
  • Velja flipann "Viðburðaskráning". Þar þarf að skrá "Tímasetning" og svo "Skrá viðburð".
  • Þegar búið er að smella á "Skrá viðburð" birtist tafla fyrir neðan með upplýsingunum.
  • Að lokum þarf að smella á "Vista breytingar".

Í listanum "Upcoming shows" eru bara atburðir sem eru ekki liðnir. Liðnir atubðir detta úr listanum, og einnig á forsíðu.
Til að sjá liðna atburði er hægt að fara í menu efst í vinstra horni og velja "Ritstjórnarskjár".

Eyða atburði

Til að eyða atburði er farið í "Ritstjórnarskjár" og þar í listanum er atburðurinn fundinn og annað hvort "Eytt" eða gerður óvirkur.